RAFSKRÆMING SVAVARS KNÚTS / DISTORTION OF SVAVAR KNÚTUR
ENGLISH BELOW
FALK kynnir RAFSKRÆMINGU SVAVARS KNÚTS, einstakan tónlistarviðburð í Mengi.
HLJÓMFAGRIR TÓNAR SÖNGVASKÁLDSINS DRUKKNA Í RAFSTRAUMNUM
SVAVAR KNÚTUR LEIKUR LÖG SÍN UMMYNDUÐ AF KRAKKKBOT OG AMFJ
Söngvaskáldið ástsæla Svavar Knútur mun ásamt raf- og óhljóðalistamönnunum KRAKKKBOT og AMFJ flytja lög sín í Mengi næstkomandi laugardagskvöld, 9. janúar.
Á tónleikunum mun Svavar leika úrval af lögum sínum á sinn einstaklega einlæga hátt, einn með gítarinn og röddina fögru. Hætt er þó við því að aðdáendum Svavars Knúts bregði í brún, því hljóð hans munu verða brotin og afskræmd, teygð og toguð, sléttuð og felld í meðförum þeirra félaga KRAKKKBOT og AMFJ.
Það verður sannkölluð hljóðveisla í Mengi þegar þessir andstæðu pólar mætast í samvinnu eða baráttu. Kvöldvaka sem fer allan skalann frá hinu mikilfenglega til hins viðkvæma, um ölduslóð sínusbylgjunnar að broti raddarinnar.
Húsið verður opnað klukkan 20. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.
Miðaverð: 2000 krónur.
Nánar um listamennina:
Svavar Knútur er þekktur um víðan völl fyrir hugljúfar lagasmíðar sínar og vinalega sviðsframkomu, auk þess að vera kunnur jafnréttissinni og málsvari lítilmagnans. Hann hefur með þrotlausri vinnu unnið hug og hjörtu landa sinna, sem og sístækkandi áðdáendahóps í þremur heimsálfum. Eftir hann liggja fjórar hljómplötur, en sú nýjasta „Brot” kom út á nýliðnu ári og hefur vakið mikla lukku. http://svavarknutur.bandcamp.com/ http://www.svavarknutur.com
KRAKKKBOT er annað sjálf listamannsins Baldur Björnssonar. Hann leikur rafræna dómsdagstónlist innblásna af annarlegum veraldarkenningum og hefur getið sér gott orð bæði heima og erlendis fyrir hljóðheim sinn og sviðsframkomu. KRAKKKBOT hefur unnið með ýmsum listamönnum og hljómsveitum auk þess að hafa gefið út tvær plötur í fullri lengd, nú síðast vínylplötuna „BLAK MUSK” hjá FALK. http://krakkkbot.bandcamp.com/
AMFJ eða Aðalsteinn MotherFucking Jörundsson hefur hvarvetna vakið athygli fyrir kraftmikla raftónlist sína, en hann blandar saman taktfastri hryntónlist og umbreyttum hvunndagstónum í ólgandi hrærigraut tilfinninga og angistar. Tónlist hans hefur komið út hjá FALK útgáfunni íslensku og Yatra Arts í Kanada, en hann vinnur nú að nýrri plötu. http://amfj1.bandcamp.com/
///
The beloved singer-songwriter Svavar Knútur will perform his songs on guitar along with the noise-artists KRAKKKBOT and AMFJ.
Svavar Knútur is known for his sincere and beautiful approach to music. His admirers might though be shocked at this concert where his sounds and music will be distorted, taken apart, shaken and stirred by KRAKKKBOT and AMFJ.
A true orgy of sounds in Mengi where these opposite poles meet, collaborate and/or contest. A vigil that involves the profound and the fragile, the sinus-wave and the human voice alone.
House opens at 8pm. Concert starts at 9pm.
Tickets: 2000 ISK.
About the artists:
Svavar Knútur is a beloved musician and has as well devoted himself to raising awareness about human rights. He has published four records so far, his last record being “Brot”, released in 2015 and has gotten great reviews.
http://svavarknutur.bandcamp.com/ http://www.svavarknutur.com
KRAKKKBOT is the alter-ego of the artist Baldur Björnsson. He performs electronic doomsday music, inspired by strange theories about the universe and has gotten great reviews for his sound-world and stage appearance. KRAKKKBOT has collaborated with many artists and orchestras and has released two records so far, the latex being BLAK MUSK, released by FALK.
http://krakkkbot.bandcamp.com/
AMFJ (Aðalsteinn MotherFucking Jörundsson) has gotten a lot of attention for his powerful electronic music where he blends together rhythmical music and distorted everyday sounds into a mixture of strange feelings and anguish. His music has been released by the Icelandic FALK records and the Canadian Yatra Arts. He’s now working on a new album.
http://amfj1.bandcamp.com/