04kira.jpg

KIRA KIRA & VINIR / KIRA KIRA & FRIENDS

Á nýju tungli í Mengi 10. Janúar 2016 kl. 21:00

Kira Kira býður áheyrendum inn á rannsóknarstofu sína þar sem vandlega valið stórskotalið, lítil orkestra og kór spinnur eftir landakortum í formi hljóðmynda sem hún sendir í heyrnatól hljóðfæraleikaranna.

Upplifunin verður hljóðrituð af kostgæfni og hún síðar þrædd inn í nýja plötu Kiru, verk sem hefur verið í vinnslu í um þrjú ár eða frá því síðasta breiðskífa hennar, “Feathermagnetik” kom út.

Áheyrendur fá hér tækifæri til þess að vera viðstaddir upptökusessjón sem er í senn spunatónleikar, að kíkja á ákveðna tónsmíðanálgun sem Kira hefur verið að þróa um árabil og gá hvort þeim tekst að hnerra ekki í 45 mínútur.

Á “Feathermagnetik” koma við sögu 13 hljóðfæraleikarar sem Kira hljóðritaði hvern í sínu lagi í jafnmörgum ólíkum rýmum, en fyrir þessa nýju plötu verður hér gerð tilraun til þess að fanga samhljóm allra í einu vinalegu Mengi.

Litla orkestran: Kristófer Rodriguez Svönuson, slagverk, Ólafur Björn Ólafsson, píanó, Hans Jóhannsson, fiðla, Kristín Þóra Haraldsdóttir, lágfiðla, Una Sveinbjarnardóttir, fiðla, Hilmar Jensson, gítar, Eiríkur Orri Ólafsson, trompet, Ingi Garðar Erlendsson, básúna, Frank Aarnik, slagverk, Jóel Pálsson, kontrabassaklarínett og KÓRINN

Húsið verður opnað klukkan 20. Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Miðaverð: 2000 kr.

///

Welcome to the laboratory of Kira Kira (Kristín Björk Kristjánsdóttir) with her small orchestra and a choir where the audience in Mengi will experience a live recording that will float into Kira Kira's next album, which she has been working on for the last three years.

Musicians will improvise and the session will be recorded. The new album is the first one after Kira Kira's Feathermagnetique.

Performers: Kristófer Rodriguez Svönuson, percussion, Ólafur Björn Ólafsson, piano, Hans Jóhannsson, violin, Kristín Þóra Haraldsdóttir, viola, Una Sveinbjarnardóttir, violin, Hilmar Jensson, guitar, Eiríkur Orri Ólafsson, trumpet, Ingi Garðar Erlendsson, trombone, Frank Aarnik, percussion, Jóel Pálsson, contra-clarinet og a choir.

House opens at 8pm. Concert starts at 9pm.

Tickets: 2000 ISK