Krakkamengi 3 / Creative Music Lab for Children 3
Tilraunanámskeið í tónlistarsköpun fyrir krakka 4-6 ára í Mengi, Óðinsgötu 2. Námskeiðið er opið öllum krökkum á þessum aldri og þeim fullorðnu sem fylgja þeim.
Fyrirkomulagið er þannig að börnin koma með foreldrum/forráðamönnum sínum í Mengi á sunnudagsmorgni klukkan 10.30 og vinna í vinnustofu í u.þ.b. klukkustund. Að því loknu fer fram flutningur á afrakstri vinnustofunnar.
Benedikt Hermann Hermannsson, tónlistarmaður og kennari, leiðir Krakkamengi en í hvert skipti koma 2 tónlistarmenn úr ólíkum tónlistargeirum og vinna með þátttakendum. Kynna tónlistarmennirnir hugmyndir sínar og vinnuaðferðir fyrir börnunum og í kjölfarið leiða þeir börnin í gegnum það ferli að búa eitthvað til og semja með þeim tónlist sem svo verður flutt.
Í þriðju smiðjunni, sem fram fer þann 7. febrúar, munu þau Magga Stína og Finnbogi Pétursson vera í hlutverki gestaleiðbeinenda. Benni Hemm Hemm, sem og gestaleiðbeinendur hans, gefa vinnu sína og er aðgangur ókeypis og opinn öllum börnum á aldrinum 4 til 6 ára sem og foreldrum þeira á meðan húsrúm leyfir en gert er ráð fyrir fullri þátttöku foreldra í smiðjunni.
///
Creative music lab for children, 4 - 6 years old along with their parents. The lab is organized by musician Benedikt Hermann Hermannson and each time he will be joined by two other musicians who will present their music making and lead the children through making their own music that will be performed at Mengi.
The guests for this session will be Finnbogi Pétursson and Magga Stína.
Starts at 10:30.Free entrance. Open for everybody as long as there is space.