Arnljótur / Kraftgalli / Trimpiltrútur
English below
(enskur viðauki að neðanverðu)
Fimmtudagskvöldið 14. febrúar klukkan 21:00 heldur tónlistarmaðurinn Arnljótur Sigurðsson tónleika í Mengi þar sem fjölbreytt dagskrá verður á boðstólum. Arnljótur mun flytja nýja raftónlist, sem að hluta var samin fyrir nýafstaðna tónleika á Safnanótt í Kópavogskirkju til móts við myndbandsverk Hrundar Atladóttur, sem verður endursýnt nú í Mengi.
Þá kemur fram Kraftgalli, enn annað hliðarsjálf Arnljóts, sem einblínir á fríkaðar poppsmíðar. Nýlega gaf Kraftgalli út stuttskífuna "Trítill" hjá SMIT Records, þar sem kafað er í heim orkneyskra trítla, sem eiga margt sameiginlegt með íslenskum hulduverum og eiga það til að ræna tónlistarfólki og hafa gaman af því að syngja og dansa og skemmta sér. Aukinheldur kemur fram uppistandarinn Trimpiltrútur og laðar fram bros á vörum gesta. Skúlptúrar og teikningar Arnljóts af trítlum sem hann hefur unnið að undanfarið verða til sýnis fyrir gesti.
Arnljótur
Just as hard to describe as to pronounce. Multi-instrumentalist working in many different genres, but this fine evening he will try out some brand new ethereal spaced out ambient music for rabbit holes, flutes, piano and electronics.
Zoom out
Zone in
Kraftgalli
Weird-pop trow-loving outlet of Arnljótur, enters the stage with
music ranging from odd time circus themes to an imaginary soundtrack to the movie Freaked.. Playful and fun, giving free smiles with each 10 € hug.
Trimpiltrútur
In the colourful fellowship of Fúsintes one can find many characters, like Gimbilgrá, Bambarabip, Baggalútur, and last but not least: Trimpiltrútur!
Is it supposed to be funny? Ambiguous wordplay through lingual wormholes. Funny poetry or poetic humor? Who knows? The beauty lies in the eardrums of the beholder
Doors open at 20.30 - Tickets are 2.000 krónur.
arnljotur.bandcamp.com
soundcloud.com/ljotur
soundcloud.com/kraftgalli
∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞
Arnljótur
Arnljótur er fjölhæfur listamaður sem starfar á mörgum mismunandi sviðum. Þetta ágætis kvöld leggur hann fyrir sér ójarðneska ambient tónlist fyrir kanínuholur, flautur, píanó og rafhljóðfæri
Súmmaðu út
Sónaðu inn
Kraftgalli
Furðu-pop verkefni Arnljótar. Það samanstendur af fjölbreyttri tónlist; hvort sem það eru sirkúsþemu eða ímynduð tónlist fyrir kvikmyndina Freaked. Tónlistin er gáskafull og skemmtileg, gefur frí bros fyrir hvert 10 € faðmlag.
Trimpiltrútur
Í litríkum félagskap Fúsintes má finna margar persónur, má þar nefna Gimbilgrá, Bambarabip, Baggalút, og síðast en ekki síst; Trimpiltrút! Á þetta að vera fyndið? Margræðir orðaleikar í gegnum ormagöng tungumálsins. Fyndin ljóðlist eða ljóðrænn húmor? Hver veit? Fegurðin býr í hljóðhimnu hlustandans.
Húsið opnar kl. 20.30 - Miðaverð er 2.000 krónur
arnljotur.bandcamp.com
soundcloud.com/ljotur
soundcloud.com/kraftgalli