fagotteri.jpg

FAGOTTERÍ

Opnunartónleikar vefs um íslenska fagotttónlist

Fagotterí heitir kvartett fyrir fjögur fagott sem fluttur verður á samnefndum tónleikum í Mengi í tilefni þess að nýr vefur um íslenska fagotttónlist fer í loftið. Fagotterí er eftir Jónas Tómasson en á tónleikunum verða auk þess flutt fjölbreytt íslensk einleiksverk fyrir fagott eftir konur og karla. Frumflutt verður nýtt einleiksverk eftir Svein Lúðvík Björnsson, flutt raftónlist, vídeólist og nýi vefurinn kynntur sem hluti af dagskránni. Sannkölluð fagottveisla í Mengi þann 16. febrúar.

Flytjendur eru fagottleikararnir Brjánn Ingason, Eugenie Ricard, Kristín Mjöll Jakobsdóttir og Michael Kaulartz.

Efnisskrá:

Bergrún Snæbjörnsdóttir: Viscosity #1

Sveinn Lúðvík Björnsson: The Groom of the Stool - frumflutningur

Jónas Tómasson: Sumarsólstöður 1991

Hafdís Bjarnadóttir: Já!

Atli Heimir Sveinsson: Fönsun IV

Jónas Tómasson: Fagotterí fyrir fjögur fagott - frumflutningur

Húsið opnar kl. 20:30. Tónleikarnir hefjast kl. 21. Miðaverð er 2.000 krónur. Öll velkomin.

Um tónlistina:

Viscosity #1 er samið fyrir Kristínu Mjöll í janúar 2016 og var frumflutt á Myrkum músíkdögum sama ár en verður flutt af Michael Kaulartz í þetta sinn. Verkið er hljóðmynd sem fléttast saman við myndskeið sem varpað er á vegg.

The Groom of the Stool heitir einleiksverkið eftir Svein Lúðvík Björnsson sem verður frumflutt og er samið fyrir Kristínu Mjöll Jakobsdóttur. Titill verksins er dreginn af aldagömlu og virðulegu starfsheiti við bresku konungshirðina og lýsir ákveðnu hugarástandi.

Sumarsólstöður ‘91 heitir einleiksverk fyrir fagott sem Jónas Tómasson samdi í kjölfar námskeiðsins innblásinn af því sem þar hafði farið fram og verður líka flutt á tónleikunum 16. febrúar í flutningi Brjáns Ingasonar.

Já! samdi Hafdísi Bjarnadóttir líka fyrir Kristín Mjöll árið 2012 og er fyrir fagott og elektróník. Efniviðurinn er sóttur í samtal á kaffihúsi og blæbrigðin í því hvernig við segjum Já!.

Fönsun IV samdi Atil Heimir Sveinsson 1968 fyrir fagottleikarann Sigurð Markússon og endurritaði það fyrir Kristínu Mjöll stuttu fyrir frumflutning þess í mars 2008. Hér mun Michael Kaulartz kljást við verkið í annað sinn frá 2015, eini fagottleikarinn sem mun þá hafa flutt verkið bæði í upprunalegri mynd og í umritun Atla frá 2008. Fönsun IV kemur út hjá Íslenskri tónverkamiðstöð í vikunni í tilefni af opnun vefsins þann 16. febrúar.

Jónas Tómasson tónskáld samdi Fagotterí árið 1991. Tveir kaflar úr verkinu voru fluttir á fagottnámskeiði sem haldið var á Ísafirði í júní það sama ár en verkið verður flutt í fyrsta sinn í heild sinni á tónleikunum í Mengi.

www.icelandicbassoonmusic.is

---

FAGOTTERÍ

An all bassoon concert

An all bassoon concert. Highlights of the program include the premiere of a new work for solo bassoon by Sveinn Lúðvík Björnsson, a bassoon quartet by Jónas Tómasson, as well as video installations and a varied selection of solo works for bassoon and electronics.

Performed by bassoonists Brjánn Ingason, Eugene Richard, Kristín Mjöll Jakobsdóttir og Michael Kaulartz.

The doors open at 8:30 pm. The event starts at 9 pm. Tickets are 2.000 krónur.

www.icelandicbassoonmusic.is