Drullumall #1 - Útgáfutónleikar
Post-dreifing
kynnir : DRULLUMALL #1 - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Post-dreifing er útgáfukollektíva sem samanstendur af ungu listafólki úr hinum ýmsu kimum grasrótarsenunnar í Reykjavík. Hópurinn hefur það að markmiði að auka sýnileika og sjálfbærni í listsköpun í krafti samvinnu.
Í byrjun mars stendur Post-dreifing fyrir útgáfu á safnplötu (DRULLUMALL #1), sem hefur að geyma alls kyns jaðartónlist, og er hugmyndin sú að gefa ákveðinn þverskurð af þeirri gífurlega fjölbreyttu tónlist sem senan hefur upp á að bjóða.
Föstudaginn 9. mars verður útgáfunni svo fagnað með ókeypis tónleikum í Mengi við Óðinsgötu. Þar koma fram eftirfarandi tónlistarfólk, sem kemur allt við sögu á DRULLUMALL :
bagdad brothers
Korter í flog
GRÓA
K.ÓLA
dreifing er hafin.
∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞ ∞
presents : DRULLUMALL #1 - RELEASE SHOW
Post-dreifing is an art collective, mostly made up of young artists, coming from different corners of the Reykjavík grassroot scene. The group´s main goal is to build visibility and self-sufficiency for artists through collaboration.
In early March, Post-dreifing will be releasing a compilation album (DRULLUMALL #1), which will hold all sorts of independent music. The idea is to offer a taste of the immensely diverse music the scene has to offer.
On Friday 9th of March we will celebrate the release with a free concert in Mengi, showcasing some of the artists featured on the compilation. The following acts will perform :