kristinanna17.jpg

Kristín Anna á föstudaginn langa / Kristín Anna on Good Friday

Tónleikar með Kristínu Önnu í Mengi föstudaginn langa, 14. apríl 2017 klukkan 21.

Miðaverð: 2500 krónur

Tónlistarkonan Kristín Anna er gestum Mengis að góðu kunn en hér hefur hún margoft magnað upp mikinn galdraseið með tónlist sinni.

Kristín Anna var liðsmaður múm á árunum 1998 - 2006 og starfaði líka lengi vel undir listamannanafninu Kría Brekkan en sem slík hefur hún komið fram á tónleikum víða um heim. Á meðal hljómsveita sem Kristín Anna hefur starfað með má nefna Animal Collective, The National, Stórsveit Nix Noltes og Seríuhljómsveit Skúla Sverrissonar svo fátt eitt sé nefnt. Hún er náinn samstarfsmaður Ragnars Kjartanssonar og hefur tekið þátt í sköpun margra hans, m.a. The Visitors og birtist í ýmsum myndum og hljóðum í verkum hans. Einnig tók hún þátt í að semja tónlistina og flytja sviðsverkið Forever Love ásamt Gyðu tvíburasystur sinni og Dessner tvíburabræðrunum í rokksveitinni The National. Þau fluttu nokkur lög úr verkinu í Barbican Theater í sumar, en þar kom Kristín Anna einnig fram ein með píanólög sín.

Kristín Anna er í þessum skrifuðu orðum að leggja lokahönd á upptökur af píanólögum sem hún hefur samið og flutt á síðustu tólf árum og kemur út á Bel-Air Glamour 2017.

∞∞∞∞∞∞∞

A concert with Kristín Anna on Good Friday, April 14th at 9pm at Mengi.

Tickets: 2500 ISK

Kristín Anna (Kría Brekkan) is an Icelandic musician and artist.

At Mengi she will be performing her own songs for piano and voice.

Kristín Anna was a member of the band múm 1998 - 2006. As Kría Brekkan she used to perform one woman shows and put out off-the radar releases between 2006 - 2015.

Last year Kristín Anna released a double LP of improvised vocal performances done in a week long residency in the desert of California titled Howl. Howl came out on Bel-Air Glamour Records, a young sub-label to London ́s Vinyl Factory curated by visual artist Ragnar Kjartansson and Ingibjörg Sigurrjónsdóttir.

A frequent collaborator of Ragnar, she stars in his famed video installation “The Visitors” playing accordion, guitar and singing. She acts or plays in many of his other pieces as well as occasionally writing and performing music with him.

Kristín Anna co-wrote and performed the music for Kjartansson’s stage art piece “Forever Love” with her twin sister Gyða Valtýsdóttir and the Dessner twin brothers of The National. They performed few of the songs from piece in the Barbican Theater last summer at a Bel-Air Glamour Soirée that coincided with Kjartansson ́s retrospective at the Barbican Art Center. She also performed few of her own songs on a grand piano and sang to raving reviews.

Later this year they will come out as a double album titled "I Must Be The Devil".