tunglid.jpg

Við tunglið erum nágrannar / Nehna Wel Amar Jeeran

Tónleikar í Mengi á Fjölmenningardegi Reykjavíkurborgar, miðvikudagskvöldið 10. maí.

English below

Fram koma líbanska tónskáldið Imad Mohammad El Turk, söngur, píanó og oud, Ásgeir Ásgeirsson, oud og bouzouki, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á fiðlu, Erik Quick á trommur og Alexandra Kjeld á kontrabassa.

Á efnisskrá eru grísk og líbönsk þjóðlög og tónlist eftir

Imad Mohammad El Turk sem hefur verið búsettur hérlendis undanfarna sex mánuði og óskað eftir dvalarleyfi á Íslandi.

Tónleikarnir eru hluti af sérverkefnavinnu meistarnámsnema listkennsludeildar LHÍ en verkefnið felst í samvinnu nema og innflytjenda í að skapa nýja tónlist á einni viku og flytja í Mengi. Verkefnu er einnig ætlað að vekja athygli á málefnum flóttamanna og hælisleitenda á Íslandi. Um umsjón verkefnisins sjá Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

Tónleikarnir fara fram á Fjölmenningardegi Reykjavíkurborgar sem nú er haldinn í níunda skipti.

Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og er miðaverð 2000 krónur.

Ágóði tónleikanna rennur til málefna hælisleitenda hér á landi.

∞∞∞∞∞∞∞∞∞∞∞∞∞

A concert at Mengi on Reykjavik Multicultural Day, Wednesday, May 10th.

Imad Mohammad El Turk, voice, piano and oud

Ásgeir Ásgeirsson, oud and bouzouki

Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, violin

Erik Quick, drums

Alexandra Kjeld, double bass

Folk songs and music from Greece and Lebanon as well as original compositions by the Lebanese composer Imad Mohammad El Turk, who has been seeking asylum in Iceland for the past six months.

Concert starts at 9pm. Tickets: 2000 isk. Income goes on the subject of asylum seekers in Iceland.

◊◊◊◊◊

Við minnum á klippikort Mengis sem kostar 16.000 krónur og veitir aðgang að tíu einstökum viðburðum að eigin vali. Klippikortið er ekki bundið við einstakling. Hægt er að bjóða vinum sínum með. Hægt er að kaupa kortið fyrir og eftir viðburði og á opnunartíma verslunar í Mengi við Óðinsgötu 2.

◊◊◊◊◊

We encourage you to buy Mengi punch card for 16.000 krónur. The card gives you access to ten exciting events at Mengi of your own choice. Not limited to one person - you can take your friends with you. The card can be bought at Mengi during the opening of our shop or before or after events.