Saadet Türköz í Mengi
Tónleikar með söngkonunni Saadet Türköz. Ásamt henni kemur fram gítarleikarinn Guðmundur Pétursson.
Tónleikar hefjast klukkan 21. Húsið verður opnað klukkan 20:30.
Miðaverð: 2500 krónur.
ENGLISH BELOW
Saadet Türköz er mögnuð raddlistakona sem hefur tekið þátt í margvíslegum tónlistarverkefnum víða um heim, sent frá sér fimm plötur undir eigin nafni, komið fram á fjölda annara hljóðritana og starfað með tónlistarmönnunum Elliot Sharp, Eyvind Kang, Ikue Mori, Fred Frith og Shahzad Ismaily svo nokkur séu nefnd.
Hún er fædd árið 1961 í Istanbúl en af kasönskum uppruna, ein af sjö systkinum. Foreldrar þeirra, Kasakar af Uyghur-þjóðinni í Xinjiang-hérað í Norður-Kína, höfðu flúið vaxandi ofbeldi kínverskra stjórnvalda í garð þjóðar sinnar árið 1939. Leiðin til Tyrklands var löng og ströng, eins árs ferðalag í gegnum Himalayafjöllin leiddi hjónin til Indlands þaðan sem þau voru send til Pakistan en þar bjuggu þau án nokkurra réttinda í rúman áratug áður en þau fengu loks aðsetur í Istanbúl í Tyrklandi árið 1953.
Saadet Türköz drakk í sig menningu og tónlistarhefðir Kasaka í Istanbúl enda mynduðu kasanskir innflytjendur þétt og samheldið samfélag í borginni. Sögurnar frá heimalandinu og frásagnir af flóttanum lituðu uppvöxt hennar og tónlistartjáningu, tónlistin sem sungin var og flutt á mannamótum, harmsöngurinn sem kasanskar konur mögnuðu upp við andlát ættmennis eða vinar, allt mótaði þetta tónlistarkonuna ungu. Annar mikilvægur áhrifavaldur frá þeim tíma var trúariðkun fjölskyldunnar, Kóraninn og músíkalskt hljómfall arabískunnar sem hún lék sér gjarnan með í eigin raddspuna.
Hún settist að í Zürich í Sviss árið 1981 en þar er hún enn búsett. Í Sviss kynntist hún annars konar tónlist sem mótaði hana ekki síður, frjálsum spuna og alls kyns innblásandi tilraunamennsku. Hún hefur síðan byggt upp afar áhugaverðan tónlistarferil sem söng- og raddlistakona þar sem saman renna tónlistarhefðir Mið-Asíu við tilraunamennsku Evrópu og Bandaríkjanna en spuni skipar stóran sess í tónlistartjáningu Saadet Türköz.
Tónleikarnir í Mengi eru fyrstu tónleikar þessarar áhugaverðu tónlistarkonu á Íslandi.
http://www.saadet.ch
•••••••••
Guðmundur Pétursson hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi sleitulaust frá unglingsaldri, leikið inn á í kringum 200 plötur, á óteljandi tónleikum og í sjónvarpsþáttum auk hljómleikaferða um fimm heimsálfur. Hann hefur spilað með listamönnum sem spanna eins vítt svið tónlistarinnar og PInetop Perkins, Donal Lunny, Erlend Oye og Pattie Smith.
Guðmundur hefur gefið út plöturnar Ologies (2008), Elabórat (2011) og Sensus (2015) auk þess að starfrækja eigin hljómsveit. Hann hefur einnig unnið í heimi klassískrar tónlistar, bæði sem tónskáld og einleikari. Meðal verka hans eru 'Konsert fyrir rafmagnsgítar og hljómsveit' sem frumfluttur var með SinfóNord 2016 og 'Enigma - fyrir rafmagnsgítar og kammersveit' sem frumflutt var á Myrkum Músíkdögum 2017. Guðmundur er einnig virkur á sviði jazz og spunatónlistar og er meðlimur í jazzhljómsveitinni Annes auk dúetts með Röggu Gröndal o.fl.
Hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir tónverk ársins í jazzflokki 2015 en áður hafði hann þrívegis hlotið sömu verðlaun fyrir gítarleik sinn.
∞∞∞∞∞∞∞∞∞∞∞∞∞∞
A concert with improvisation vocalist Saadet Türköz and guitarist Guðmundur Pétursson.
Starts at 9pm.
Tickets: 2500 isk.
Improvisational vocalist Saadet Türköz was born in Istanbul to parents who were Kazakh refugees from East Turkestan (Uyghur Autonomous Region in China). Türköz learned from the elderly people of the Kazakh community in Istanbul the rich oral and musical traditions of Central Asia. Strongly influenced by the tales of their homeland, the long journey to Turkey, etc., those tales became an imaginative source for her improvisational singing later. Another source has been the Koran she listened to as a child. Its' Arabic sound and melodious text gave her the first opportunity to improvise freely without paying attention to the correct meaning of the beautiful language.
At the age of 20, she moved to Zürich, where she experienced a new music world: free jazz, improvisation and an experimental and unbiased approach to her musical roots. Currently based in Zürich, she is active in giving solo concerts, as well as performances with other musicians, in different countries.
http://www.saadet.ch
"Saadet Türköz works with memories. The feeling influences the language of the poems she chooses, and the language influences the character of the pieces. The Kazakh language, which is bound to the origin of her parents, mediates for her an archaic general tenor. Having to do with the protracted departure from the lost homeland that Saadet Türköz never saw, this language has become a symbol for the pain of loss. But to only create from the traditional songs did not appear to the singer as authentic; the material handed down made up a point of departure from which she has developed her own preferences. Again and again an unpredictable adventure, this path fascinates her."
Raphael Zehnder
••••••••••
Guðmundur Pétursson has been active on the Icelandic music scene since his teens, playing on 200 albums, in countless concerts and TV apperances as well as touring in five continents. He has played with artists from a very broad musical spectrum such as PInetop Perkins, Donal Lunny, Erlend Oye and Pattie Smith.
Guðmundur has made the albums Ologies (2008), Elabórat (2011) and Sensus (2015) along with performing with his own band. He has also worked in the classical domain as a composer and soloist. Among his works are “Concerto for electric guitar & orchestra” premiered with Symphony Nord in 2016 and “Enigma - for electric guitar and Chamber Orchestra”, premiered at the Dark Music Days in 2017.
Gudmundur is active in the field of jazz and improvisation, a member of the jazz group Annes, folk improv outfit with Ragga Gröndal among others. He received the Icelandic music awards for "Composition of the year" in jazz category 2015. Previously he has been nominated three times for his guitar playing.