Uppistand fyrir þunglyndissjúklinga
Fram koma Stefán Ingvar Vigfússon & Þórdís Nadia Semichat
Í Mengi, föstudagskvöldið 9. júní klukkan 21. Húsið verður opnað klukkan 20:30
Miðaverð: 2000 krónur - seldir við innganginn eða í gegnum booking@mengi.net
Um listamennina:
•Stefán Ingvar er sviðslistamaður og grínisti. Hann er nemi við Sviðshöfundabraut LHÍ og útskrifast þaðan vorið 2018. Þetta er í fyrsta skipti sem hann flytur uppistand opinberlega.
•Nadia hefur unnið sem uppistandari í 7 ár með hléum. Hún útskrifaðist sem sviðshöfundur úr Listaháskóla Íslands 2015. Henni er margt til lista lagt en hefur glímt við þunglyndi síðan hún var unglingur. Ein leið í bataferlinu hennar er að finna húmorinn í veikindunum og gera grín að sjálfri sér í gegnum uppistand.
∞∞∞∞
Stand-up for People Struggling with Depression (in Icelandic)
Performers: Stefán Ingvar Vigfússon & Þórdís Nadia Semichat
At Mengi on Friday 9th at 9pm. House opens at 8:30 pm.
Tickets: 2000 isk - at the door or through booking@mengi.net