Jacques Brel á íslensku / Jacques Brel in Icelandic
Baldvin Orwes flytur nokkur af vinsælustu lögum söngvaskáldsins Jacques Brel í íslenskum þýðingum Atla Ingólfssonar.
Með honum leikur dúettinn Brotinn öxull: Kjartan Valdemarsson, á harmónikku, og Hávarður Tryggvason, á kontrabassa. Miðar (3.000 kr.) við innganginn, eða bókaðir á booking@mengi.net.
ENGLISH BELOW
Þetta er í annað skipti sem Baldvin Orwes treður upp í Mengi og flytur dagskrá sem helguð er lögum belgíska söngkvaskáldsins Jacques Brel. Fyrri tónleikarnir voru haldnir fyrir troðfullu húsi í október 2016 og komust færri að en vildu. Það er okkur því mikill heiður og ánægja að geta tekið á móti þessum sómamanni á ný en honum til halds og traust verða tónlistarmeistararnir Kjartan Valdemarsson og Hávarður Tryggvason. Ekki missa af þessum einstæða viðburði.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Húsið verður opnað klukkan 20:30
∞∞∞∞∞
A concert with some of Jacques Brel's most beloved songs in new Icelandic translations by composer Atli Ingólfsson.
Voice: Baldvin Orwes
Accordion: Kjartan Valdemarsson
Double bass: Hávarður Tryggvason.
For the second time at Mengi Baldvin Orwes performs some of Jacques Brel's fantastic songs. At Baldvin's first concert at Mengi in October 2016 it was completely sold out so don't miss out on the opportunity to hear this wonderful singer with his band performing some great music.
Tickets: 3000 isk at the door or by booking@mengi.net
Concert starts at 9pm - doors at 8:30pm.