14feldmann.jpg

Fimm tímar Feldmans / Five Hours of Feldman - RMM 2017

Fimm tímar Feldmans / Five Hours of Feldman

Reykjavík Midsummer Music

(English below)

Strengjakvartett nr. 2 eftir Morton Feldman er lengsti strengjakvartett sem nokkru sinni hefur verið skrifaður. Hann tekur um 5 tíma í flutningi og sprengir þannig utan af sér alla hefðbundna umgjörð slíkra verka. Verkið er tilraun um tímann og upplifun mannsins á honum – hljóðar umbreytingar hans og síbreytileg mynstur bjóða hlustandanum inn í leiðslukennt ferðalag um eigin hugarheim, minningar, væntingar og skynjun. Tónleikagestum er frjálst að standa og sitja, koma og fara (hljóðlega) að vild, en verðlaun verða veitt þeim sem sitja út allt verkið. Hinn frábæri Strokkvartettinn Siggi sýnir hér einstakt úthald til viðbótar við margrómað listfengi.

Miðar við dyrnar á 2000 krónur - hátíðarpassi veitir bæði aðgang og forgang:

https://www.harpa.is/.../reykjavik-midsummer-music-2017.../

Öll dagskrá: www.reykjavikmidsummermmusic.com

____

Listamenn / Artists:

Strokkvartettin Siggi / Siggi String Quartet:

Una Sveinbjarnardóttir, Laufey Jensdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir, Sigurður Bjarki Gunnarsson.

Dagskrá / Programme

String Quartet No. 2

____

Morton Feldman’s String Quartet nr. 2 is the longest string quartet ever written. It takes about 5 hours in performance, bursting the conventional setting for such works. The quartet is an experiment on time and how we humans experience it – its quiet alterations and ever-changing patterns invite the listener on a meditative journey of one’s own mind, one’s memories, expectations and perceptions. Guests at this concert are welcome to sit or stand, and to come and go as the please (quietly, of course). There will, however, be a prize for those who stick it out to the end. The wonderful Siggi String Quartet here demonstrate their unique endurance, in addition to their musical excellence.

Full Programme: http://reykjavikmidsummermusic.com/en/

Tickets (2000 isk) at the door, Festival Pass ensures admission.

Full Programme: http://reykjavikmidsummermusic.com/en/

Festival Pass at a discounted price of 12.900 ISK available here:

https://en.harpa.is/.../reykjavik-midsummer-music.../...

Reykjavík Midsummer Music, 22.-25 júní 2017

Í Hörpu og Mengi

„Kammermúsík á heimsmælikvarða“ — Víðsjá

„Absolutely unmissable“ —Reykjavík Grapevine

„Einn af hápunktum tónlistarársins“ — Fréttatíminn

„Emotionally and intellectually stimulating“ — Concerti Magazine

„Hástemmd fegurð, ekki af þessum heimi“ — Fréttablaðið