Kristín Anna

Kristín Anna mun spila nýtt og eldra efni úr lagasafni sínu.
Daníel Friðrik Böðvarsson og Ingi Garðar Erlendsson munu leika með henni, fimmtudaginn 11. október kl. 21. Miðaverð er 2.500 krónur.

Í vor kom Kristín Anna fram í Cincinnati Art Museum á Homecoming hátíðinni þar í bæ. Í sumar tók hún tók hún svo þátt í tónlistar-residensíu fyrir Eaxu Claire Music and Art Festival í Wisconsin og PEOPLE festival í Berlín og kom nokkru sinnum fram á hátíðunum.

Í tilefni af PEOPLE festival kom út í 200 eintökum á vínyl samansafn laga eftir hana sem kallast "Lay Me Down".
Nokkur eintök af plötunni verða til sölu á tónleikunum.

Kristín Anna hefur komið víða við á tónlistarferli sínum. Hann hófst með hljómsveitinni múm árið 1998. Um áraraðir kom hún fram sem Kría Brekkan og flutti tónlist eða gjörninga. Kristín Anna var harmónikkuleikari Stórsveitar Nix Noltes meðan hún var og hét og hefur leikið og sungið inn á plötur hjá Animal Collective, Mice Parade og Slowblow. Hún var einnig meðlimur í Leikhúsi Listamanna og hefur fengist mikið við sviðs- og gjörningarlistir. Þá er hún náinn samstarfmaður Ragnars Kjartanssonar, en hún kemur fram í fjölda verka hans og semur og spilar í hljómsveitinni All Star Band.

∞ ∞ ∞ ∞

Kristín Anna will be performing some new and older material this Thursday evening at Mengi. She will be accompanied by guitarist Daníel Friðrik Böðvarsson.
Doors open at 20:30 - tickets 2.500 ISK.

This spring Kristín Anna performed at the Cincinnati Art Museum Homecoming event. In the summer she participated in a music residency for the Eaxu Claire Music and Art Festival in Wisconsin and the PEOPLE festival in Berlin where she performed multiple times at each.

In celebration of the PEOPLE festival she released a limited-edition vinyl run of 200 records with original songs by her called "Lay Me Down". A few copies will be for sale at the concert.

Kristín Anna has participated in many projects during her career which began with the band múm in 1998. For several years she appeared under the name Kría Brekkan and performed music and performance art. Kristín Anna was a harmonica player for the band Nix Noltes and has appeared on albums by numerous bands such as Animal Collective, Mice Parade and Slowblow. She was also a member of Leikhús Listamanna (The Artist Theatre) where she engaged in stage and performance art. She is a close collaborator of Ragnar Kjartansson, and has appeared in many of his works and his project the "All Star Band".