14egbyd.jpg

Ég býð mig fram / 2. sýning

ÉG BÝÐ MIG FRAM er listahátíð sem Unnur Elísabet Gunnarsdóttir heldur utan um. Þann 26.október mun Unnur flytja þrettán þriggja mínútna verk eftir þrettán listamenn úr ólíkum áttum. Allir listamennirnir eiga það sameiginlegt að hafa veitt Unni innblástur í gegnum tíðina með sinni listsköpun. Listamennirnir fengu allir sent sama bréfið með ósk um að semja örverk.

Bréfið byrjaði svona:

Kæri listamaður þú hefur veitt mér innblástur! Mér þykir forvitnilegt hvernig þú hugsar og langar mikið til að fá að gægjast inn í hugarheim þinn...

…Allir sögðu já…

Ég býð mig fram snýst um að brjóta niður veggi. Kasta sér út í alheiminn, sjá hvort hann grípur, kastar þér tilbaka eða fer með þig í rússíbanareið. Listahátíðin snýst um að koma saman, án fordóma, án landamæra, bara fólk að vinna saman. Hittast í miðju, teygjast, kuðlast eða móta hvort annað á stuttum þremur mínútum hvort sem þær verða enn fleiri í framtíðinni eða fyrstu og síðustu mínútur samvinnu þessara tveggja aðila. Það veit það enginn nema hann taki sénsinn.

Höfundar:

Aðalheiður Halldórsdóttir

Arnór Dan Arnarson

Bergur Ebbi Benediktsson

Daði Freyr Pétursson

Kristín Gunnlaugsdóttir

Hannes Þór Egilsson

Kristín Þóra Haraldsdóttir

Vala Kristín Eiríksdóttir

Saga Sigurðardóttir

Ólöf Nordal

Margrét Bjarnadóttir

Barði Jóhannsson

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir

Flytjandi: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

“Mín skoðun er ekki endilega sú rétta. Mín sýn er ekki sú eina. Ég vil fagna lífssýn annarra. Ég vil færa miðju alheimsins” -Unnur Elísabet.

Sýningarnar verða aðeins 5 í Mengi:

Fimmtudagskvöldið 26.október klukkan 21

Sunnudagskvöldið 5. nóvember klukkan 21

Fimmtudagskvöldið 16.nóvember klukkan 21

Fimmtudagskvöldið 23.nóvember klukkan 21

Laugardagskvöldið 25.nóvember klukkan 21

Miðaverð: 3500 krónur

https://www.facebook.com/BYDMIGFRAM/

www.unnnurelisabet.com

https://www.instagram.com/eg_byd_mig_fram/