07outof.jpg

Egill Sæbjörnsson - Out Of Controll in Venice (Album Launch)

Listening Party // Drinks & Snacks// LP for sale

Kicks off at 17.00

A full length album with music written by Egill Sæbjörnsson in collaboration with Ugh & Boogar for their installation "Out of Controll in Venice" which was his contribution to the Icelandic Pavilion at the 57th Biennale Arte in Venice 2017.

∞∞∞∞∞∞

Í tilefni af útgáfu plötunnar Out of Controll er þér boðið í tröllateiti í Mengi miðvikudaginn 13. desember klukkan 17. Platan er samvinnuverkefni myndlistarmannsins Egils Sæbjörnssonar og tröllanna Ūgh og Bõögâr sem hafa verið fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum 2017.

Þótt tónlistarbakgrunnur tröllanna Ūgh og Bõögâr sé lítill sem enginn og þeir hafi ekki kynnst músík fyrr en á síðasta ári þegar samstarf þeirra við Egil Sæbjörnsson hófst eru þeir núna orðnir alætur á tónlist og hlusta jöfnum höndum á Black Sabbath og barnalög með Ómari Ragnarssyni. Á plötunni, sem hefur að geyma þrettán lög, spila þeir á heimasmíðað tröllahljóðfæri, risastóran tréstaf sem þeir lemja í jörðina svo úr verður grípandi bassalína auk þess sem raddir þeirra fléttast inn í hljóðheiminn en af og til reka þeir upp mögnuð öskur.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir