Tómamengi: Fjölröddun á tímum faraldurs | Pandemic Polyphony

FJÖLRÖDDUN Á TÍMUM FARALDURS
PANDEMIC POLYPHONY

Áshildur, Svanur, Guðrún Hrund og Pamela flytja nýleg verk eftir Gunnar Andreas

Röð verka:

Vörður/Cairns
fyrir víólu og tölvu (2018), opinber frumflutningur. Lengd ca. 11’
Flytjandi: Guðrún Hrund Harðardóttir

Þrír skúlptúrar/Three Sculptures
fyrir flautu, gítar og hljóðrás (2017), frumflutningur. Lengd 8’
Flytjendur: Áshildur Haraldsdóttir og Svanur Vilbergsson

Rammar/Frames
fyrir altflautu, kontrabassaflautu og lúppustöð (2018). Lengd ca. 11’
Flytjandi: Pamela De Sensi

Verkin eiga það sameiginlegt að sameina lifandi hljóðfæraleik og rafhljóð, en hvert á ólíkan máta. Þau eru öll afsprengi vinnu Gunnars í Tónverinu í Kópavogi á árunum 2016-2018 og sýna nýja hlið á tónskáldinu.

Á tímum faraldurs, þegar ómögulegt er fyrir stærri tónlistarhópa að koma saman og flytja lifandi tónlist, er kærkomið að geta flutt verk fyrir 1-2 hljóðfæraleikara þar sem fjölröddun er náð fram með hjálp lúppustöðvar, tölvu eða hljóðrásar.

Three Sculptures, sem er unnið upp úr verkinu Fluid Sculptures fyrir flautukór og gítar, hefur aldrei verið flutt áður. Hljóðrásin samanstendur af upptökum á 10 flauturöddum, allt frá kontrabassaflautu upp í pikkóló, sem Áshildur spilaði allar inn hverja á eftir annari nema kontrabassaröddina sem var spiluð af Pamelu. Verkið Vörður var samið fyrir Guðrúnu Hrund vorið 2018 en heyrist nú í fyrsta sinn opinberlega. Rammar var pantað af Pamelu og frumflutt á tónleikum í Listasafni Íslands vorið 2018.

Ath. vegna samkomubanns munum við senda viðburðinn út í gegn um netið og lokað verður í Mengi á meðan. Fylgist þið með á www.mengi.net, Youtube og Facebook síðu Mengis eða á www.visir.is

Hægt verður að styrkja þessa góðu tónlistarmenn og tónskáld
i) Með því að hringja í 901-7111 (1.000 krónur)
ii) Með millifærslu á Kass appinu í númerið 865-3644 (upphæð að eigin vali)
iii) Með PayPal millifærslu á payment@mengi.net (upphæð að eigin vali)

Hefðbundið miðaverð á tónleika í Mengi er 2.000 krónur en listamenn og tónskáld þakka kærlega fyrir öll framlög.