Back to All Events

TÓMASMENGI: Tumi Árnason & Magnús Trygvason Eliassen

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Kæru Smengistar,
þá er kominn tími til þess að halda SMENGI enn á ný. Að þessu sinni eiga ferlegheitin sér stað yfir alnetið í streymi.

Magnús T. Eliassen og Tumi Árnason munu þeyta skífum og flytja nýja tónlist.

Tumi Árnason og Magnús Trygvason Eliassen gáfu út plötuna „Allt er ómælið“ árið 2019 við mikla kátínu óreglufíkinna jazznörda. Þótti það nokkuð vel heppnuð gandreið um lendur spunans, á tímum ærslafull en líka jafnvel örlítið hjartnæm við og við. Tvíeykið hefur másað og lamið sig í gegnum aragrúa tónleika undanfarin ár og hafa ritfærir hlustendur skrifað um þá á framandi tungumálum á borð við ítölsku, frönsku, pólsku og ensku.

Á komandi ári er væntanleg önnur breiðskífa frá tvíeykinu og hún gæti haft svörin við öllum helstu gátunum! Komið og hlýðið á heimsfrumsýningu á tónverkum á borð við: Rafskjár, T-Alienz og Endalaust!

Hægt er að greiða framlög:
Með millifærslu á Kass í númerið 865-3644 (upphæð að eigin vali)
Með PayPal millifærslu á payment@mengi.net (upphæð að eigin vali)
Hefðbundið miðaverð á tónleika í Mengi er 2.000 krónur en listamaðurinn og Mengi þakka kærlega fyrir öll framlög.

Plakat eftir Villa Susan

Viðburðurinn er styrktur af Reykjavíkurborg

Later Event: November 28
TÓMASMENGI: Femme Terror