Nordic Affect kemur fram í Mengi miðvikudaginn 23. september kl. 21:00. Miðaverð er 2.500 kr.
Ath: bara þessir einu tónleikar og miðar eru takmarmaðir við 30 vegna samkomutakmarkana.
Við bendum einnig á að nú er grímuskylda á tónlistar- og menningarviðburðum og því bjóðum við gestum upp á grímur við komu.
Ástinni, naglalakki, leikskólum og spilaborgum bregður fyrir í lagsmíðum Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur sem verða í fókus á tónleikum Nordic Affect. Hópurinn hefur áður flutt verk Steinunnar sem er tónskáld, ljóðskáld og sellóleikari en að þessu sinni verða frumflutt tvö ný verk ásamt eldra efni. Sérstakur gestur er söngvarinn og langspilsleikarinn Eyjólfur Eyjólfsson. Verkum Steinunnar verður fléttað saman við tónsmíðar frá barokktímanum eftir m.a. Matteis, Fontana, Philips og íslenska(n) óþekkta(n)
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir semur ljóð og lög. Þau flytur hún í ýmsum gjörningi, ein eða í föruneyti ágætasta tónlistarfólks. Nokkur laga sinna syngur Steinunn á plötunni Ljúfa huggun (2019), en einnig hefur hún smíðað kammerverk, m.a. fyrir Tónlistarfélag Akureyrar, Corpo di Strumenti, og nú Nordic Affect. Steinunn hefur gefið út ljóðabækurnar USS (2016) og FUGL/BLUPL (2019), og ný bók er væntanleg í haust.
Nordic Affect hefur komið sér á kortið sem framsækinn tónlistarhópur. Gagnrýnendur innanlands og utan hafa hælt hópnum í hástert, m.a. fyrir ‘ineffable synergy between the performers’ (San Francisco Classical Voice), lýst honum sem ‘multi-disciplinary force of nature’. (A Closer Listen) og sem gersemi í íslensku tónlistarlífi (Fréttablaðið).
Hópurinn er styrktur af Menningarsjóði Reykjavíkurborgar og Tónlistarsjóði Mennta- og Menningarmálaráðuneytisins.
Nánari upplýsingar má finna á FB síðu hópsins og vefsíðu:
www.facebook.com/nordicaffect
www.nordicaffect.com
Miðaverð 2.500 kr | Húsið opnar 20:30 | Tónleikar hefjast 21:00