Tónlistarmaðurinn Þórir Georg hefur komið víða við á þeim 20 árum sem hann hefur verið að gefa út tónlist. Hann hefur spilað í hljómsveitum á borð við Gavin Portland, Ofvitarnir, ROHT, Óreiða og mörgum fleirum. Auk þess hefur hann gefið út tónlist sem einyrki undir eigin nafni og listamannsnafninu My Summer as a Salvation Soldier.
Í apríl gaf hann út plötuna „Nokkur góð“ á vegum
Reykjavík Records Shop. Nokkur góð er safn af lögum tekin upp á árunum 2009 – 2019 sem voru upprunalega gefin út á nokkrum mismunandi smærri útgáfum.
Til að halda upp á það mun hann halda útgáfutónleika þann 3. júní í Mengi. Á tónleikunum mun Þórir taka lög af plötunni, önnur eldri lög og jafnvel eitthvað glæ nýtt. Auk Þóris mun
söngvaskáldið Axel Flóvent koma fram.
--
Over his 20-year music career, Þórir Georg has been around. He has played in bands such as Gavin Portland, Ofvitarnir, ROHT, Óreiða, and many more. But he has also released music under his own name and My Summer as a Salvation Soldier.
In April he released the record compilation record "Nokkur góð" on Reykjavík Record Shop which features songs from 2009 - 2019 but these songs were originally released on various smaller labels.
To celebrate the album's release Þorir will perform in Mengi on June 3rd. During the concert, Þórir will perform songs from the record, older songs, and even some new material. He will be joined by singer-songwriter Axel Flóvent.
Doors open at 19:30 | Tickets 2.500 kr