Back to All Events

Ólöf Arnalds fagnar hausti í Mengi

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Saturday, September 6th
ÓLÖF ARNALDS FAGNAR HAUSTI Í MENGI
doors 19:30 / show 20:00
3000kr

Söngvaskáldið Ólöf Arnalds fagnar sínum uppáhalds árstíma í Mengi og flytur áhorfendum m.a. ný lög af væntanlegri breiðskífu sinni, Spíru, í bland við gamalt og gott eftir sjálfa sig og aðra.

Ólöf Arnalds hóf feril sinn sem söngvaskáld með hljómplötunni Við og við, sem hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir. Á erlendri grundu var hún valin í hópi bestu platna ársins af Paste Magazine, auk þess sem eMusic valdi hana eina af bestu plötum fyrsta áratugarins. Fyrir aðra sólóplötu sína, Innundir skinni, hlaut Ólöf Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónsmiður ársins, auk þess sem platan var tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunanna. Þá hefur Ólöf gefið út plöturnar Sudden Elevation og Palme en báðar hlutu þær mikið lof gagnrýnenda víða um heim. Fimmta breiðskífa Ólafar er væntanleg í byrjun desember. Á farsælum ferli sínum hefur Ólöf einnig lagt stund á að túlka lög eftir aðra, m.a. á smáskífunni Ólöf Sings.

Ólöf hefur leikið á tónleikum víðsvegar um Evrópu, Bandaríkin og Ástralíu og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Fjöldi dagblaða, tímarita, vefmiðla, útvarps- og sjónvarpsstöðva víðsvegar um heim hafa fjallað um hana og verk hennar. Má þar nefna The New York Times, The Guardian, Vanity Fair, Paste, BBC, KEXP og Uncut.

Singer-songwriter Ólöf Arnalds returns to Mengi to celebrate autumn by playing some new songs from her upcoming album Spíra along with other classics from her repertoire.

Ólöf Arnalds is an Icelandic composer and multi-instrumentalist. Her most distinctive asset is, nonetheless, her voice of instantly captivating, spring water chasteness possessed of a magical, otherworldly quality that is simultaneously innocent yet ancient (“somewhere between a child and an old woman” according to no less an authority than Björk). Her work has been called "stunning" by SPIN, "bewitching" by Rolling Stone, "remarkable" by the NME, "ethereal" by Vanity Fair "otherworldly" by The New York Times, and "impossibly lovely" by Paste.

Earlier Event: September 5
Björg Brjánsdóttir
Later Event: September 12
Mark Fell & Rian Treanor