Back to All Events

Elskum plötubúðir - tónlistarveisla plötubúða í desember

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Plötubúðir í Reykjavík og Tónlistarborgin Reykjavík bjóða upp á tónleika í streymi auk spjalls tónlistarsérfræðinga um íslenskar útgáfur ársins fjögur kvöld fram að jólum. Streymt verður beint frá tónleikunum á FB-síðu Tónlistarborgarinnar sem og FB-síðu hverrar plötuverslunar fyrir sig.

Veislan hefst kl 21:00 í kvöld í Smekkleysu! Fram koma hljómsveitin Tendra og Kristín Anna ásamt leynigesti. Auk þess ætla Lovísa Rut og Benni Reynis að spjalla um íslenskar útgáfur ársins. Fylgist með á FB-síðunni okkar og Smekkleysu – við lofum góðri upplifun!

Smekkleysa Plötubúð

Dagskráin er sem hér segir:

Smekkleysa - 15. des kl 21:00
-Tendra
-Kristín Anna
-Lovísa Rut og Benni Reynis spjalla um íslenskar útgáfur ársins

12 Tónar - 17. des kl 21:00
-Gróa
-Skoffín
-Elísabet Indra og Andrea Jóns spjalla um íslenskar útgáfur ársins

Reykjavík Record Shop - 21. des kl 21:00
-Hist og
-Markús
-Óli Dóri og Heiða Eiríks spjalla um íslenskar útgáfur ársins

Lucky Records - 22. des kl 21:00
-Ingibjörg Turchi
-Dalalæða
-Steinar Fjeldsted og Svavar Pétur Eysteinsson spjalla um íslenskar útgáfur ársins.

Verkefnið er framhald verkefnis sem hófst í sumar og átti að fara fram í þrjú skipti í plötuverslunum Reykjavíkur. Vegna COVID-19 var einungis hægt að halda viðburðinn í eitt skipti sem þó gafst einstaklega vel. Nú færum við viðburðinn yfir á netið. Hugmyndin að baki verkefnisins er að styðja við bakið á plötuverslunum á einkar erfiðum tímum og fagna mikilvægu hlutverki þeirra í tónlistarborginni. Á þessum tímum og rétt fyrir jólin viljum við einnig með verkefninu benda fólki á að með því að kaupa íslenska tónlist í jólapakkann er það að styðja við bæði plötuverslanirnar og okkar frábæra tónlistarfólk.

Verkefnið, sem er samstarf Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur og plötuverslana í Reykjavík, er stutt af Jólaborginni, FHF, FÍH og STEF.

Earlier Event: December 12
Sýningin MIRA! í Mengi