Steingrímur Teague og Andri Ólafsson koma fram í TÓMAMENGI fimmtudaginn 26. mars kl. 20
Ath. vegna samkomubanns munum Mengi senda viðburðinn út í gegn um netið og lokað verður á Óðinsgötu á meðan. Fylgist þið með á www.mengi.net, Youtube og Facebook síðu Mengis eða á www.visir.is
Steingrímur Teague hefur spilað og sungið með allskonar liði í gegnum tíðina, en lengst af með hljómsveitinni Moses Hightower. Í Tómamengi ætlar hann að flytja sígrænar lummur úr smiðju jöfra á borð við Blossom Dearie, Prúðuleikaranna, Joni Mitchell og Velvet Underground. Steingrímur ætlar að leika á húspíanó Mengis, en Mosesbróðir hans Andri Ólafsson verður til halds og trausts á kontrabassa í völdum lögum.
Okkur finnst mikilvægt að benda á það að yfirvofandi tekjumissir tónlistarmanna getur reynst þeim þungur baggi og því höfum sett upp 3 greiðsluleiðir til að auðvelda áhorfendum að styðja við þá:
👆 Með því að hringja í 901-7111 (1.000 krónur)
🤘 Með millifærslu á Kass í númerið 865-3644 (upphæð að eigin vali)
🤟 Með PayPal millifærslu á payment@mengi.net (upphæð að eigin vali)