Back to All Events

Hróðmar Sigurðsson ásamt hljómsveit

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Bókið sæti á booking@mengi.net
Athugið að grímuskylda er í Mengi.

Nú fer að styttast í komu fyrstu plötu Hróðmars sem kemur út seinna á þessu ári. Að því tilefni ætlar hann kalla saman hljómsveit sína, spila tónleika og gefa smá forsmekk af því sem koma skal.

Hljómsveitina skipa :
Hróðmar Sigurðsson : gítar
Ingibjörg Elsa Turchi : rafbassi
Tumi Árnasson : tenórsaxófónn
Elvar Bragi Kristjónsson : trompet og flugelhorn
Ingi Garðar Erlendsson : básúna
Magnús Trygvason Eliassen : trommur
Svanhildur Lóa Bergsveinsdóttir : slagverk
Leynigestur : slide-gítar

Miðaverði er stillt í hóf og kostar einungis 2.000 kr. inn. Húsið opnar 20:30 og tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Takmarkaður sætafjöldi, tryggið ykkur miða á booking@mengi.net.

Earlier Event: February 4
Tómleikar | Sóley
Later Event: February 6
[Open] Club Day í Mengi