Göngum saman fagnar bleikum október með hamingjustund í Mengi, gleðjast saman og styrkja gott starf. Með aðgöngumiðanum kemur drykkur og gúddíbag. Gunnhildur Óskarsdóttir formaður Göngum saman, mun ávarpa hópinn og söngkonan Ólöf Arnalds flytja ljúfa tóna.
Einnig mun vera uppboð á nýju málverki eftir listakonuna Huldu Vilhjálmsdóttur, sem sigraðist sjálf á brjóstakrabbameini, en óvenjuleg verk hennar hafa náð miklum vinsældum á Íslandi og vakið mikla athygli hér heima og erlendis.
Við hlökkum til að sjá ykkur!