Back to All Events

Vínylútgáfa Án tillits | Magnús Jóhann & Skúli Sverrisson

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Nýverið gáfu tvíeykið Magnús Jóhann og Skúli Sverrisson út plötuna Án tillits. Hingað til hefur hún eingöngu verið aðgengileg í netheimum en nú hefur borist fyrsta sending af veglegri vinylútgáfu plötunnar. Af því tilefni bjóða þeir Magnús og Skúli alla velkomna að fagna því með þeim í Mengi 25. nóvember frá kl 17-19.

Umslag plötunnar er hannað af Halldóri Eldjárn en forsíðuna prýðir stafrænt listaverk sem er myndað úr upplýsingum sem fást úr tónlist plötunnar. Keyrsla reiknirits Halldórs hefur því búið til 250 mismunandi útgáfur af forsíðunni sjálfri og hvert og eitt eintak einstakt og tölusett handvirkt.

Einungis verður takmarkað magn í boði næstkomandi fimmtudag en restin af upplaginu kemur til landsins í byrjun desember. Reykjavik Record Shop gefur plötuna út og hægt verður að versla sér fleiri góðar skífur frá þeim.

Áfengir og óáfengir drykkir í boði meðan birgðir endast.

Vert er að minnast á að sóttvarnir verða til fyrirmyndar, mikið spritt og grímuskylda.