POSTPONED / FRESTAÐ
Nordic Affect kemur fram í Mengi en sérstakir gestir á tónleikunum eru tónlistarfólkið Mikael Lind og Lilja María Ásmundsdóttir.
Pantið miða með því að smella hér.
Á efnisskrá eru þrjú splunkuný verk eða 'ARACHNE' fyrir einleikssembal og lifandi rafhljóð eftir Báru Gísladóttur, 'Ofdune' fyrir einleiksfiðlu eftir Veronique Vöku og 'Sönderfallet' eftir Mikael Lind sem samið er fyrir strengjatríó og lifandi rafhljóð. Mikael Lind kemur sjálfur fram í verkinu og flytur jafnframt nýtt einleiksverk. Einnig verður Íslandsfrumflutt verkið 'Shapes of flight underneath the riverbed' eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttir sem hópurinn frumflutti í Brunel Museum í London síðasta vetur. Verkið er samið fyrir hópinn og hljóð og ljósskúlptúrinn Huldu sem hannaður var af Lilju Maríu.
Nordic Affect hefur komið sér á kortið sem framsækinn tónlistarhópur. Gagnrýnendur innanlands og utan hafa hælt hópnum í hástert, m.a. fyrir ‘ineffable synergy between the performers’ (San Francisco Classical Voice), lýst honum sem ‘multi-disciplinary force of nature’. (A Closer Listen) og sem gersemi í íslensku tónlistarlífi (Fréttablaðið).
Hópurinn er styrktur af Menningarsjóði Reykjavíkurborgar og Tónlistarsjóði Mennta- og Menningarmálaráðuneytisins.
Nánari upplýsingar má finna á FB síðu hópsins og vefsíðu:
Húsið opnar kl. 20:30 | Miðaverð 2.500 kr.