Í tilefni af 20ára endurútgáfu af fyrstu plötu Stafræns Hákons, "Eignast Jeppa" ætlar hið svokallaða "Jeppaband" að flytja plötuna í heild sinni fyrir gesti.
Platan verður af sjálfsögðu til sölu ásamt takmörkuðu upplagi af "Remix" útgáfu á geisladisk.
Þar sem 2 núverandi meðlimir hljómsveitarinnar eru búsettir erlendis hefur Jeppabandið verið stofnað. Þar er endurkoma tveggja nátengda aðila hljómsveitarinnar staðreynd. Samúel White sem hefur verið með frá upphafi (fjarlægur í seinni tíð) og Nói Steinn sem var einmitt fyrstur manna til að spila á lifandi trommur með hljómsveitinni árið 2003 á Grand Rokk. Áður fyrr og þegar þetta efni var spilað í lifandi mynd var trommari hljómsveitarinnar lítill ferðageislaspilari sem reyndar sló ekki feilnótu, en hans er ekki saknað.
Húsið opnar kl. 20.30 og miðaverð er heilar 2000kr.
ATH. Einungis pláss fyrir 50 manns
Hér má tryggja sér miða á tónleikana.
Jeppabandið skipa:
Lárus Sigurðsson: Rafgítar
Nói Steinn Einarsson: Slagverk
Ólafur Josephsson: Rafbassagítar
Samúel White: Rafgítar