Back to All Events

hist og vol. 2

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Hist og snýr aftur í Mengi fimmtudaginn 7. apríl næstkomandi!
Húsið opnar kl. 20:30 | Hefst kl. 21:00
Miðaverð er 2.500 kr.

Tríóið hist og var stofnað í lok árs 2017 til þess að rugla saman reitum raf-og djasstónlistar. Tríóið skipa Eiríkur Orri Ólafsson, sem leikur á trompet, trommuheila og hljómboð, Róberta Andersen á gítar, bassa og hljómborð og Magnús Trygvason Eliassen á trommur og slagverk.
Meðlimir tríósins beina stækkunarglerinu að sameiginlegum snertifleti sínum, með innhverfri, úthverfri og slagþungri blöndu af djass, raf-, og spunatónlist sem kemur víða við.
hist og á að baki tvær plötur, Days of Tundra (2019) og hits of (2020). Báðar hlutu þær mikið lof og hefur hljómsveitin landað þremur tilnefningum til Íslensku Tónlistarverðlaunanna í djassflokki bæði árin, sem og sæti á Kraumslistanum 2019 og “Spuni Ársins” sama ár hjá Morgunblaðinu.
Um hits of skrifaði Arnar Eggert Thoroddsen hjá Morgunblaðinu ma. “Hörkustöff … stimpill þessa ofurtríós kirfilega á öllum smíðum.” Platan hlaut sæti á Kraumslistanum 2021.
Meðlimir hist og hafa starfað um árabil með hinum ýmsustu hljómsveitum, svo sem múm, amiinu og Sin Fang, Sigur Rós, Kiru Kiru, Benna Hemm Hemm og Seabear, ásamt ótal samstarfsverkefna á sviði djasstónlistar með ADHD, Hilmari Jenssyni, Skúla Sverrissyni og Mógil.

∞ ∞ ∞

Founded in 2017 to distill a murky blend of jazz and electronic music, hist og is a trio featuring Eiríkur Orri Ólafsson on trumpet and electronics, Róberta Andersen on guitar, bass and synth, and Magnús Trygvason Eliassen on drums and percussion. Through the lens of their shared musical language, they explore a Day-Glo lit ruminative world of improvisation, jazz and electronic music.
hist og has released two albums, Days of Tundra (2019) and hits of (2020). Both records received wide praise, harvesting three nominations to the Icelandic Music Awards in both 2020 and 2021, a seat on the venerated Kraumur list in 2019 and 2021, and named among “Improv of the year” by Morgunblaðið. Music critic Arnar Eggert Thoroddsen wrote “smashing stuff … every song is rigidly stamped by the seal of this super-trio.”
The members of hist og have worked with countless outfits over the years, such as múm, Sin Fang, amiina, Sigur Rós, Kira Kira, Seabear and others. They have also collaborated with supreme jazz entities such as ADHD, Hilmar Jensson, Skúli Sverrisson and Mógil.

Doors at 8:30pm | Starts at 9pm
Tickets at the door for 2.500 kr.

Earlier Event: April 4
Skerpla í Mengi
Later Event: April 9
Þórarinn Eldjárn | Útgáfuhóf