Back to All Events

Þórarinn Eldjárn | Útgáfuhóf

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Allt og sumt er vísnakver eftir Þórarin Eldjárn. Þar birtast eitthundrað nýjar stökur og spökur – limrur, ferskeytlur og ferskskeytlur. Vísurnar fjalla um allt, með sérstakri áherslu á sumt.

Útgáfuhóf verður haldið í Mengi milli klukkan 14-16 þann 9. apríl. Einnig verða til sýnis prentverk með völdum ljóðum úr bókinni. Léttar veitingar í boði.

Þórarinn Eldjárn er fæddur 1949. Fyrsta bók hans kom út 1974 og síðan hefur hann sent frá sér ótal verk af ýmsu tagi: ljóðabækur fyrir börn og fullorðna, vísnakver, smásagnasöfn, skáldsögur og þýðingar.

„Og mikið er gaman þegar frumleg hugsun og snjöll mynd rúmast saman í fullkominni ferskeytlu. Þannig lagað gera fáir betur en Þórarinn.“
Þorgeir Tryggvason / bokmenntaborgin.is

Earlier Event: April 7
hist og vol. 2
Later Event: April 9
Mikael Lind