Back to All Events

Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett | Tinna & Júlía | Myrkir Músikdagar

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Tónleikauppfærsla á nýrri kammeróperu, fyrir mezzósópran og selló, eftir Önnu Halldórsdóttur við ljóð úr bók Elísabetar Jökulsdóttur: Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett.

Miðar á Tix

Flytjendur:

Tinna Þorvalds Önnudóttir Mezzósópran og Júlía Mogensen sellóleikari

Spindrift Theatre er finnskt-íslenskt sviðslistakollektív, stofnað árið 2013 og samanstendur af sex sviðslistakonum. Tvær þeirra, Tinna og Bergdís Júlía, standa að þessu tiltekna verki hafa fengið til liðs við sig magnaðan hóp.

Tinna Þorvalds Önnudóttir útskrifaðist með BA gráðu í leiklist árið 2010 og hefur frá árinu 2012 stundað klassískt söngnám hjá Alinu Dubik, mezzósópran. Hún er því útlærð bæði leik- og söngkona og leitast við að finna tilraunagleðina í óperuforminu.

Bergdís Júlía Jóhannsdóttir er leikstjóri sýningarinnar en hún útskrifaðist með BA gráðu í leiklist árið 2013. Hún hefur víðtæka reynslu bæði sem leikkona og leikstjóri, og leikstýrði núna síðast Tónleikhúsverkinu: „Skemmtilegt er myrkrið“ eftir Elínu Gunnlaugsdóttur í Hörpu.

Anna Halldórsdóttir er tónskáld verksins en hún hefur hlotið Íslensku Tónlistarverðlaunin auk annarra viðurkenninga fyrir verk sín. Hún hefur sent frá sér þrjár hljómplötur með eigin tónlist og unnið að tónlist og hljóðmynd fyrir kvikmyndir, heimildamyndir og leikhús.

Júlía Mogensen er klassískt menntaður sellóleikari, sem hefur átt í fjölbreyttu samstarfi við breiðan hóp listamanna hér heima og erlendis. Júlía lærði við LHÍ og í London, við Guildhall School of Music & Drama og lauk síðar tveggja ára námi í Berlín. Hún var meðlimur Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku Óperunnar frá árunum 2013-2019.

Elísabetu Jökulsdóttur þarf ekki að kynna en fyrsta bók hennar, ljóðabókin: „Dans í lokuðu herbergi“, kom út árið 1989 og síðan hefur hún sent frá sér fjölda bóka, ljóð, sögur og skáldsögur. Hún hefur einnig skrifað fjölda leikrita sem sett hafa verið upp hér á landi og erlendis. 

https://www.facebook.com/SpindriftTheatre

https://www.instagram.com/spindrifttheatre/

http://spindrift.team/