Back to All Events

Hljómsveit Mikaels Mána í Mengi

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Bókið sæti á booking@mengi.net
Ath. Grímuskylda er á viðburðinn.

Miðvikudaginn 6. janúar mun hljómsveit gítarleikarans Mikaels Mána halda tónleika í Mengi. Bandið mun leika nýtt efni af annarri sólóplötu Mikaels sem er nú í smíðum og verður gefin út í vor 2021. Á tónleikunum má heyra nýjar tónsmíðar eftir Mikael sem samdar eru um fólk, kvikmyndir og setningar sem mótað hafa líf og persónuleika hans - hlutir sem vekja hann til umhugsunar og láta honum líða vel og illa. Mikael gaf út sína fyrstu plötu, “Bobby”, í júní 2019 með tríói sínu og var hann tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2020 fyrir lagasmíðarnar á þeirri plötu, auk þess sem hann hlaut lof gagnrýnenda.

Tónlistin sem flutt verður á tónleikunum er "Jarm" tónlist en það er ný tónlistarstefna sem blandar saman jazzi, impressionisma og rokki. Hljóðfæraskipan hljómsveitarinnar er afar spennandi, en Mikael samdi lögin fyrir saxófón og klarinett, metalafón og píanó, gítar, rafbassa og trommur. Meðlimir hljómsveitarinnar skarta afar fjölbreyttum bakgrunni og kemur hér saman tónlistarfólk úr heimi klassískrar- og samtímatónlistar, jazzi og poppi. Saman vinna meðlimir bandsins að útsetningum og myndun þessa nýja hljóðheims og er útkoman í senn nýstárleg og grípandi.

Bandið skipa:
Lilja María Ásmundsdóttir, píanó og metalafónn
Sölvi Kolbeinsson, alto sax og klarinett
Ingibjörg Elsa Turchi, rafbassa
Magnús Trygvason Elíassen, trommur
Mikael Máni Ásmundsson, rafgítar

Rýni um "Bobby":
"Það er sjaldgæft að fá í hendurnar jafn margslungna plötu og Bobby er. Við fyrstu hlustanir er um stórkostlega djúpa, ljóðræna og blíða djassplötu að ræða sem er jafnframt bæði gefandi og krefjandi.”
- Ragnheiður Eiríksdóttir fyrir Morgunblaðið

Húsið opnar 19:30 | Tónleikar hefjast 20:00 | Miðaverð 2500 kr.

Takmarkaður sætafjöldi.

________

On wednesday the 6th of January in Mengi, guitarist Mikael Máni’s will perform new music with his band from his upcoming second solo album which will be released in spring 2021. The music is inspired by people, movies and sentences which have sculpted his life and character - things that have encouraged him to think and feel, both good and bad. Mikael Máni released his debut album, “Bobby” with his trio in June 2019 but his compositions for “Bobby” landed him a nomination for the Icelandic Music Awards of 2020 and stellar reviews.

Mikael’s more recent compositions introduce a new genre, namely “Jarm” which mixes jazz, impressionism and rock. The instrumentation of the band also strikes a new note but the quintet consists of guitar, electric bass, drums, metalaphone and piano, alto saxophone and clarinet. The band members all have different musical backgrounds, ranging from classical and contemporary music to pop and jazz, enriching the music with a fresh and ear-catching soundscape.

The band consists of:
Lilja María Ásmundsdóttir - Piano and Metalaphone
Sölvi Kolbeinsson - Alto Sax and Clarinet
Ingibjörg Elsa Turchi - Electric bass
Magnús Trygvason Elíassen - drums
Mikael Máni Ásmundsson - electric guitar

A review about “Bobby”:
“Bobby establishes Mani as a thoughtful, deft musician ready to add his voice to the roster of Scandinavians who continue to sculpt a distinctive jazz sound.”
- Franz A. Matzner, All about Jazz.

Doors open 19:30 | Concert starts 20:00 | Tickets 2500 kr.

Limited seating available. Book a ticket via booking@mengi.net

Earlier Event: December 22
Harp & Arp