Back to All Events

Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band gefur út tvö epísk spunatónverk laugardaginn 30. október sem bera nöfnin Church og School. Koma verkin út á tvöfaldri vínilplötu, sem hægt er að forpanta um leið og platan er keypt á bandcamp.

Stór hljómsveit kemur fram í Mengi þetta laugardagskvöld og flytur sín þekktustu spunaverk og aðra slagara.

Húsið opnar kl. 20:30
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00
Miðaverð er 2.500 kr. og má fyrirframpanta þá hér: https://forms.gle/Z92wEnshHVPy9Ezy8

-♫ ♪ ♬

Á næstu mánuðum mun Mengi gefa út heila röð verka sem koma út undir nafninu Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band. Til að blása af krafti í lúðra til að fagna því að þessi útgáfuröð er lögð af stað í sinn leiðangur í mannheima hafa tvö fyrstu verkin verið pressuð á tvær vínylplötur sem koma út ásamt stútfullum pakka af myndlistargúmmelaði eftir enska listamanninn Peter Liversidge, en hann gerir einnig myndbandsverk við bæði tónverkin. Platan dregur nafn sitt af verkunum tveimur: CHURCH / SCHOOL.

Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band er harðasta og brjálaðasta útgáfan af hljómsveit Benna Hemm Hemm sem heyrst hefur í hingað til. Svo hörð og brjáluð er hún að hún þarf sérstakt nafn og heila útgáfuröð sér til heiðurs. Verkin tvö sem koma út á þessari plötu eru bæði nálægt því að vera hálftími að lengd og dugir það rétt svo til að koma því til skila sem komast þarf. Í verkunum má heyra flæðandi kaótískar útsetningar fyrir saxófóna, flautur, orgel, fiðlur, trommur, píanó og þarna má heyra upptökufrumraun laumusópranstjörnu.