Church / School - vídeófrumsýning
Peter Liversidge + Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band
Myndbönd við tvö epísk spunatónverk Benna Hemm Hemm, sem tekin eru upp og sett saman af breska myndlistarmanninum Peter Liversidge verða frumsýnd í Mengi sunnudaginn 31. október kl. 21
Verkin eru samtals um 50 mínútur að lengd og verða sýnd í heild sinni í fyrsta sinn.
Peter Liversidge verður á staðnum og hægt verður að spyrja hann út í verkin að sýningu lokinni.
Ekki missa af einstöku tækifæri til að sjá þessi stórfenglegu vídeóverk á stóru tjaldi í bestu mögulegu hljómgæðum, þar sem hægt er að ræða við höfund verksins að sýningu lokinni.
Húsið opnar kl. 20:30.
Miðaverð er 1.000 krónur.