Ólöf Arnalds kveður jólin - söngstund og tónleikar
(english below)
Notaleg samverustund í tilefni þrettándans þar sem söngvaskáldið ástsæla Ólöf Arnalds flytur hátíðarlög og eigin lagasmíðar.
Ólöf hóf sólóferil sinn með „Við og við“ sem hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir. Á erlendri grundu var hún valin í hópi bestu platna ársins af Paste Magazine auk þess sem eMusic valdi hana eina af bestu plötum fyrsta áratugarins. Fyrir „Innundir skinni“ hlaut Ólöf Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónsmiður ársins, auk þess sem platan var tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunana. Þá hefur Ólöf gefið út plöturnar „Sudden Elevation“ og „Palme“ en báðar hlutu þær mikið lof gagnrýnenda. Á farsælum ferli sínum hefur Ólöf einnig lagt stund á að túlka lög eftir aðra, m.a. á smáskífunni „Ólöf Sings.“
Ólöf hefur leikið á tónleikum víðsvegar um Evrópu, Bandaríkin og Ástralíu og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Fjöldi dagblaða, tímarita, vefmiðla, útvarps- og sjónvarpsstöðva víðsvegar um heim hafa fjallað um hana og verk hennar. Mætti þar nefna The New York Times,The Guardian, Vanity Fair, Paste, BBC, KEXP og Uncut.
Miðaverð kr. 4000
Ólöf Arnalds’s last day of Christmas celebration
A cosy evening of Icelandic traditional songs intertwined with some of Ólöf’s own compositions to bid the Christmas season farewell.
Ólöf Arnalds is an Icelandic composer and multi-instrumentalist. Her most distinctive asset is, nonetheless, her voice of instantly captivating, spring water chasteness possessed of a magical, otherworldly quality that is simultaneously innocent yet ancient (“somewhere between a child and an old woman” according to no less an authority than Björk). Her work has been called "otherworldly" by The New York Times, "stunning" by SPIN, "bewitching" by Rolling Stone, "remarkable" by the NME, "ethereal" by Vanity Fair and "impossibly lovely" by Paste.
Ticket price ISK 4000