Back to All Events

Ólöf syngur inn í sumarið

  • Mengi 2 Óðinsgata 101, Reykjavík Iceland (map)

Söngvaskáldið Ólöf Arnalds er við það að ljúka upptökum á næstu sólóplötu sinni, Tár í morgunsárið. Hún verður því í góðu stuði til að verma hjörtu okkar í Mengi með ljúfsárum lögum sínum og ljóðum, nýjum og eldri í bland.

Ólöf hóf sólóferil sinn með hinni rómuðu „Við og við" sem hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir. Hún var valin í hóp bestu platna ársins af Paste Magazine auk þess sem eMusic valdi hana eina af bestu plötum fyrsta áratugarins. Fyrir „Innundir skinni" hlaut Ólöf Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónsmiður ársins en platan var tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunana. Þá hefur Ólöf gefið út plöturnar „Sudden Elevation" og „Palme" en báðar hlutu þær mikið lof gagnrýnenda. Ólöf hefur leikið á tónleikum víðsvegar um Evrópu, Bandaríkin og Ástralíu og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Fjöldi dagblaða, tímarita, vefmiðla, útvarps- og sjónvarpsstöðva víðsvegar um heim hafa fjallað um hana og verk hennar. Mætti þar nefna The New York Times,The Guardian, Vanity Fair, Paste, BBC, KEXP og Uncut.

Húsið opnar 19:30 | Miðaverð 3.500 kr

-----

Singer songwriter Ólöf Arnalds is in the final stage of recording her next album, Tár í morgunsárið. She will warm our hearts in Mengi with her souring songs and poetry, blending her most recent work with older classics.

Ólöf Arnalds is an Icelandic singer, songwriter and multi-instrumentalist. Her work has been called "otherworldly" by The New York Times, "stunning" by SPIN, "bewitching" by Rolling Stone, "remarkable" by the NME, "ethereal" by Vanity Fair and "impossibly lovely" by Paste.

Doors open 19:30 | Tickets 3.500 kr

Earlier Event: May 25
Sandrayati Release Concert